Frambjóðandi Frjálslyndaflokksins í Reykjavík
Viðar Helgi Guðjonshen skrifaði nýverið grein þar sem hann telur
útlendinga sem hér búa vera rótina að öllum þeim vanda sem við
okkur blasir.
Af lestri greinarinnar má klárlega álykta sem
svo að útlendingar séu upp til hópa, berklasjúkir eiturlyfjasalar
og skipulagðir nauðgarar sem halda laununum niðri og með öllu
ómögulegt sé að kenna íslensku.
Magnús Þór Hafsteinsson varaformaður
Frjálslyndaflokksins sá ekki ástæðu til þess að bera á móti þessu
harkalega sjónarmiði Viðars í viðtali við Egil Helgason og fram
hefur komið að formaðurinn Guðjón Arnar Kristjánsson segir ummæli
Viðars ekki koma sér við.
Um þessar mundir má heyra fréttir af vaxandi
kynþáttahatri hér á landi þar sem m.a. er gróflega vegið að
erlendum verkamönnum með slagorðum sem forysta Frjálslyndra notar,
"Ísland fyrir íslendinga" auk teikninga af hakakrossi og manni sem
hangir í snöru.
Forysta Frjálslyndra er klárlega að koma því til
leiðar með málflutningi sínum, ákafa og tortryggni í garð
útlendinga að kynþáttahatur og pirringur í garð útlendinga verði að
vandamáli hér á landi. Ég hef því miður allt of oft lent í deilum
við fólk sem er farið að pirra sig á þeim útlendingum sem það þarf
að eiga samskipti við og iðulega er vitnað til Magnúsar Þórs og
félaga hans í Frjálslynda flokknum til þess að rökstyðja það hversu
skelfilegar manneskjur útlendingar eru.
Í einu tilviki spurði ég viðmælanda minn, eftir
að hafa fengið langa ræðu pirrings og ofstopa að segja mér hvort
það væri ekkert gott sem fylgdi þeim útlendingum sem hann ætti
samskipti við. Hik kom á viðmælanda minn og átti hann erfitt með í
útlendingapirringi sínum að viðurkenna að svo væri.
Það er fyrst og fremst Frjálslyndiflokkurinn með
upphrópunum sínum og ofstæki sem er að koma í veg fyrir að
heilbrigt fjölmenningarsamfélag þar sem allir fái notið virðingar
þrífist hér á landi. Við höfum enn tækifæri til þess að byggja
fjölbreytt samfélagi og læra af reynslu annarra þjóða og koma í veg
fyrir að mistök sem átt hafa sér stað erlendis verði okkar
hlutskipti. Því miður er Frjálslyndiflokkurinn langt komin með að
eyðileggja þann möguleika með því að sá fræjum tortryggni og
ofstækis.
JB
Greinin birtist í Morgunblaðinu í gær
12.apríl