Greinin um bankastjórahlaupið sem er hér á síðunni birtist í
Fréttablaðinu í síðustu viku. Það kom mér skemmtilega á óvart
hversu mikil viðbrögð ég hef fengið við henni. Ég held bara að ég
hafi aldrei fengið eins mikið af viðbrögðum við neinni grein og öll
eru þau afskaplega jákvæð. Það eru einkum hlauparar sem hafa
tjáð sig en svo var mjög gaman að lesa pistil Þráinns Bertelssonar
í Fréttablaðinu laugardaginn 26. ágúst s.l. en þar segir
hann:
"Las mjög skemmtilega greiní Fréttablaðinueftir Jóhann Björnson
kennara um hina feimnislaususjálfsauglýsingu Bjarna bankastjóra og
Glitnis-Maraþonið. Út af einhverju fjárframlagi snerist
fréttaflutningur frá Reykjavíkurmaraþoninu mestan part um Glitni en
ekki íþróttamennina - nema auðvitað bankastjórann. Margur verður af
aurum api."
